Karl um Bubba og lesblinduna: Bíður eftir öðruvísi fréttum af árangri unga fólksins

Karl Guðlaugsson, tannlæknir og MPM, skellti sér á sýninguna Níu líf um liðna helgi í Borgarleikhúsinu. Í pistli í Fréttablaðinu í dag segir Karl að honum hafi fundist sýningin mjög áhuga- og umhugsunarverð af ákveðinni ástæðu.

„Allir þurfa að finna til sín. Það er komið árið 2022 og lesblindir finna ekki til sín í bóknámi þar sem lesskilningur er keppikeflið! Núna styttist í árlegar fréttir í dagblöðum af verðlaunum framhaldsskóla til örfárra stúdenta fyrir hæstu einkunnir í gömlu klassísku námsgreinunum,“ segir hann og spyr svo:

„Hvenær ætli komi árlegar fréttir í dagblöðum um verðlaun til þeirra sem eru á aldrinum 16-20 ára og hafa frábæra hæfileika í tilfinningagreind, hreyfigreind, tónlistargreind, þrívíddargreind og iðnaðargreind ? Eða þurfum við kannski áfram næstu áratugi að sitja uppi með fréttir af Bubbum sem sitja í fangelsi þar sem þeir fengu aldrei að finna til sín með hæfileika sína.“