Karl tætir skrif Ingu Sæland í sig: „Er heimska harkalegt orð? Nei“

Karl Th. Birgisson, ritstjóri Herðubreiðar, tætir skrif Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, í sig. Inga skrifaði pistil á Facebook-síðu sína á dögunum, sem Hringbraut fjallaði um, en þar sendi hún skýr skilaboð til ferðamanna sem hyggjast heimsækja landið. Voru skilaboðin á þá leið að þeir ættu að halda sig heima hjá sér til að forðast útbreiðslu COVID-19 hér á landi.

Karl sendir Ingu tóninn í pistli sem birtist á vef Herðubreiðar í gær og hreinlega tætir hann í sig. Um er að ræða einskonar greiningu á pistlinum þar sem Karl tekur fyrir nánast hverja einustu fullyrðingu Ingu og hrekur hana.

Inga sagði í pistli sínum til dæmis þetta:

„Flokkur Fólksins segir ferðamönnum að gjöra svo vel að halda sig heima í blússandi heimsfaraldri og virða líf annarra og heilsu ekki að vettugi.“

Karl segir á móti í pistli sínum:

„Við segjum fólki að halda sig heima. Já og einmitt. Bæði ný og eldri dæmi sanna að það eru ekki síðri líkur á að smitast af pestinni í Bónus en í Berlín. Veiruskömmin er svo heimsk að hún þekkir hvorki landamæri né tungumál.

Inga Sæland skrifaði svo um vanhæfa ríkisstjórn og hversu ómögulegt það er að mega skoða eldgos en ekki fara á skíði. Sagði Inga að það hafi ekki tekið erlenda ferðamenn langan tíma að þurrka út „fallega græna litinn“ sem Ísland hafði. Nú sé Ísland orðið appelsínugult og við siglum hratt og örugglega á eldrauða svæðið. Við þessu segir Karl:

„Þetta er allt „þeim“ að kenna. „Þau“ eyðilögðu „skartið“ okkar, hvorki meira né minna. Á meðan Íslendingar smituðu hver annan í bunkum utan sóttkvíar.“ Hann nefnir svo fleiri dæmi úr pistlinum máli sínu til stuðnings. Karl segir að allajafna væri ekki orðum eyðandi á svona málflutning en hann gerir það samt enda á í hlut formaður stjórnmálaflokks og þingmaður sem vonandi vill láta taka sig alvarlega.

Karl endar pistilinn á þessum orðum:

„En hver er þá þessi formaður og hvaða stjórnmálaflokks? Það skiptir minnstu máli. Af því að þetta snýst um hugmyndir og lífsviðhorf, en ekki einstaka stjórnmálafígúrur. Allt okkar vafstur á að snúast um annars konar fólk en þau. Samferðafólk okkar á jörðinni um stund, bæði þau sem eiga hér bústað og hin, sem eiga hvorki samastað né lífsviðurværi. Ekki þetta heimska, sem ég hef nú vitnað í. Er heimska harkalegt orð? Nei. Heimska er ekki dómur um gáfnafar, heldur um hugarfar, almenna afstöðu til lífsins á jörðinni og jafnvel mannskilning. Þess vegna þyrftum við sennilega að fækka heimskum stjórnmálamönnum.“