Greint var frá því í dag að lögregla hefði hækkað viðbúnaðarstig sitt vegna ákvörðunar Landsréttar um að sleppa tveimur mönnum úr haldi í hryðjuverkamálinu svokallaða.
Sveinn Andri Sveinsson, verjandi annars mannsins, dró í efa tilgang varðhaldsins í samtali við DV.
„Þetta er greinilega spurning um eitthvert stolt hjá ríkislögreglustjóra. Þetta er bæði sóun á almannafé og aðgerð sem gerir ekkert annað en að vekja upp ótta hjá fólki með kvíðaröskun,“ sagði Sveinn Andri við DV.
Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn ræddi við Fréttablaðið um málið, en þar skaut hann á Svein Andra.
„Lögregla hefur ákveðna ábyrgð og skyldur gagnvart öryggi almennings,“ sagði hann. „Við tökum allar okkar ákvarðanir byggðar á þeim gögnum sem við höfum í höndunum og okkur ber að gera það, hvort sem fólki líkar betur eða verr. Við kjósum að nálgast alla þá sem við erum í samvinnu við út frá fagmennsku og okkur ber að upplýsa almenning um stöðuna. Það er okkar hlutverk og við gerum það hvort sem einhverjum verjanda þykir það fáránlegt eða ekki. Hann verður þá að búa við það í sinni einsemd.“