Karl slær í gegn á HM og reynir að koma dótturinni út á ný: „Í guðanna bænum, þetta er gull­fal­leg kona“

Karl Brynjólfs­son gerði aðra ör­væntingar­fulla til­raun til að koma ein­hleypri dóttur sinni, Eddu Mjöll Karls­dóttur í sam­band í sjón­varps­fréttum Stöðvar 2 í gær.

Karl hefur vakið at­hygli á hliðar­línunni á leikjum Ís­lands á Heims­meistara­mótinu í hand­bolta fyrir inn­lifun sína í stúkunni.

Þegar Karl ræddi þetta við Stefán Árna Páls­son nýtti hann tæki­færið til að vekja at­hygli á því að Edda Mjöll, dóttir sín, væri 29 ára, gull­fal­leg kona og hvort að það gæti ekki ein­hver komið sér í sam­band við hana.

„Dóttir mín er 29 ára, býr ennþá heima og er á lausu. Í guðanna bænum, þetta er gullfalleg kona. Getur ekki einhver, einhver?“ sagði Karl en myndbandið má sjá hér.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem tilraun Karls til að koma dóttur sinni í samband vekur athygli en hann leigði auglýsingaskilti á Akureyri og vakti athygli á sambandsstöðu Eddu og bróður hennar, Kristófers, árið 2021.

„Syst­kinin Edda Mjöll og Kristó Karls verða á Akur­eyri þessa helgina í leit að maka!,“ stóð á skiltinu með upplýsingum um Insta­gram-reikning þeirra syst­kina og síma­númer þeirra.

Neðst á skiltinu stóð „Ég SKAL koma þeim út, kveðja pabbi.“