Karl segir að fyrst og fremst einn maður hafi verið sigurvegari kosninganna um síðustu helgi

Karl Garðarsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, segir að fyrst og fremst einn maður hafi verið sigurvegari kosninganna um liðna helgi.

Það kemur kannski fáum á óvart að þingmaðurinn sem Karl nefnir sé Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, en Framsóknarflokkurinn bætti við sig miklu fylgi.

„Það er nánast einsdæmi að sjá ráðherra í öruggu sæti í kjördæmi sínu yfirgefa það til að berjast fyrir þingsetu í kjördæmi þar sem flokkur hans hafði ekki átt þingmann í mörg ár. Það var ekki bara Ásmundur sem veðjaði á réttan hest, heldur líka Framsókn sem keyrði á honum á lokaspretti kosningabaráttunnar,“ segir Karl í færslu á Facebook-síðu sinni og bætir við að góð ástæða hafi verið fyrir því.

„Ásmundur hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir baráttu sína fyrir velferð barna þar sem við megum vænta byltingar á komandi árum. Hann mun líka snúa sér að málefnum aldraðra á komandi kjörtímabili, kjörum þeirra og velferð. Þetta er gríðarlega mikilvægt og nauðsynlegt að hann fái að sinna ráðuneyti sínu áfram.“