„Samfélag Íslendinga á Spáni fer ört stækkandi því dýrtíðin á Íslandi er allt að drepa,“ segir Karl Kristján Hafsteinn Guðmundsson í viðtali í Fréttablaðinu í dag.
Karl Kristján, sem er þekktur undir nafninu Kalli á Spáni, hjá Íslendingasamfélaginu í Torrevieja sagði upp vinnunni sinni árið 2018. Það gerðist eftir að hann fór með eiginkonu sinni í tíu daga vetrarleyfi til landsins og mátuðu þau sig við Spán veturinn á eftir.
„Þá var ég sextugur og hafði unnið á kvöld-, nætur- og helgarvöktum sem öryggisvörður hjá Reykjavíkurborg á Vitatorgi í tæp níu ár,“ segir Karl við Fréttablaðið í dag en þar fer hann ítarlega í saumana á því hvernig er að búa á Spáni.
Kalli er 64 ára prentsmíðameistari, Hafnfirðingur úr Hvaleyrarholtinu, fjögurra barna faðir og afi sjö barnabarna.
Hann segir að Íslendingar á íslenskum lífeyri á Spáni láti vel af sér á Spáni og samfélagið þar fari ört stækkandi.
„Það er vonandi að Seðlabankinn haldi fast í gengi íslensku krónunnar gagnvart evrunni svo Ísland fái ekki allt þetta fólk í hausinn. Það er ljóst að heilbrigðis- og félagsmálakerfin heima þyldu ekki álagið sem fylgdi slíkum hreppaflutningum Íslendinga frá Evrópu,“ segir hann.
Fram kemur að í venjulegu árferði hafi verðlag á Spáni verið um 55 prósent af því sem Íslendingar eiga að venjast á Íslandi.
„Þessi munur, er að mér finnst, ívið meiri þótt vöruverð hafi hækkað á báðum stöðum. Þar munar mestu um stýrivaxtabreytingar Seðlabanka Íslands. Mér finnst sorglegt þegar ungt fólk er platað í ágætis lánakjör með 0,5 prósenta stýrivöxtum og þeir síðan hækkaðir í 6 prósent á stuttum tíma. Þetta þýðir hreinlega að fólk sem á sér lítið bakland missir allt sitt innan árs til þeirra sem standa þessa hækkun af sér,“ segir hann.
Ítarlegt viðtal við Karl á vef Fréttablaðsins.