„Ég sé ekki eftir plássinu, en vil gjarnan að eigur Guðna komist til erfingja hans,“ segir fjölmiðlamaðurinn Karl Th. Birgisson á Facebook-síðu sinni.
Karl og Guðni Már Henningsson, sem var lengi vel einn vinsælasti útvarpsmaður þjóðarinnar, voru nánir vinir en eins og kunnugt er lést Guðni á heimili sínu á Tenerife í október í fyrra. Guðni, sem var 69 ára, hafði búið á eyjunni frá árinu 2018.
Eftir andlát hans tók Karl við stórum hluta af innbúi hans og vill hann gjarnan að það komist í hendur aðstandenda Guðna.
„Fyrir réttu ári fannst hann Guðni Már Henningsson elskulegur látinn í íbúðinni sinni. Restin af innbúinu hans er ennþá hér í íbúðunni minni, fimmtán ferðatöskur og tvær steríógræjusamstæður af voldugri sortinni. Ég sé ekki eftir plássinu, en vil gjarnan að eigur Guðna komist til erfingja hans. Flugfélög finna á því öll tormerki að flytja dánarbúið til Íslands, jafnvel þótt greiðsla komi fyrir. Því bið ég ykkur nú, sem vitið af ferðalögum til Tenerife, sem gætu kippt með sér einni tösku til Íslands – að hnippa í mig. Takk, og þessum texta má alveg endilega deila.“