Karl Gauti Hjaltason fyrrverandi þingmaður Miðflokksins hefur sótt um embætti héraðsdómara hjá Héraðsdómi Suðurlands, í sínu heimavígi.
Eins og frægt er datt Karl Gauti út af þingi í kjölfar seinni talningar í Norðvesturkjördæmi. Hann var ekki allskostar sáttur við það og hefur farið mikinn í umræðunni í kjölfarið um að kjósa þurfi aftur og að niðurstöður úr Norðvesturkjördæmi séu ekki marktækar.
Nú virðist hins vegar vera sem svo að Karl Gauti sé búinn að taka niðurstöðuna í sátt og því farinn að skima í kringum sig í leit að öðrum vinnum og ævintýrum. Þrátt fyrir það liggur endanleg niðurstaða ekki fyrir þar sem að undirbúningskjörbréfanefnd með Birgi Ármannsson í forsvari hefur ekki skilað niðurstöðum sínum.
Líklegast er þó talið að staðið verði við seinni talninguna úr Norðvesturkjördæmi og því breytist núverandi þingmannaskipan ekki. Því mun væntanlega fylgja nokkur gremja hjá Karli, en hugsanlega finnur hann sárabót í embætti héraðsdómara Suðurlands – ef hann verður svo heppinn að fá vinnuna.