Karl Gauti: Karlar beittir for­dómum, nei­kvæðni og hatri

„Á um­liðnum árum hefur orðið á­berandi nei­kvæð um­ræða í sam­fé­laginu, oft for­dóma­full og á köflum haturs­full um karl­kynið, sem ungir drengir komast ekki hjá að verða varir við,“ sagði Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Mið­flokksins, í um­ræðum á Al­þingi í dag.

Þar fór fram sér­stök um­ræða um ­bætt upp­eldi, leið til for­varna og lýð­heilsu en máls­hefjandi var Una María Óskars­dóttir, vara­þing­maður Mið­flokksins.

Karl Gauti steig í pontu og beindi máli sínu að um­hverfi, um­önnun og upp­eldi drengja sér­stak­lega. „Þar liggja fyrir fjöl­margar rann­sóknir og tölur sem endur­spegla líðan þeirra og benda til að þeir eiga margir erfitt upp­dráttar um­fram jafn­aldra sinna meðal stúlkna.“

Karl spurði hvort þetta væri ekki verðugt rann­sóknar­efni í bar­áttunni sem hér er við að eiga, til dæmis í bar­áttunni við eitur­lyfja­vandann, brott­fall úr skólum og aðra þætti sem fólki er kunnugt um.

„Við erum á einu máli um árangur hvað varðar heilsu þjóðarinnar á síðustu ára­tugum en við leitumst við að gera betur og um það fjallar þessi um­ræða. Við megum ekki sofna á verðinum því ógnirnar eru margar. Hug­myndir um til dæmis auð­veldara að­gengi að á­fengi, aukið frjáls­ræði í aug­lýsingum um á­fengi, hug­myndir um frjáls­ræði hvað varðar að­gengi að ýmsum fíkni­efnum sem nú eru ó­lög­leg. Allt eru þetta ógnir sem við þurfum að halda vöku okkar gagn­vart.“