Hinn geðþekki fréttahaukur og sjónvarpsmaður Karl Eskil Pálsson viðurkennir að hann hafi orðið skíthræddur þegar hann fór skyndilega að finna fyrir miklum svima þegar hann settist eða stóð upp.
Karl, sem starfar fyrir norðlensku sjónvarpsstöðina N4, segir frá þessu á Facebook-síðu sinni.
„Svona getur lífið verið dásamlegt, ég fékk í síðustu viku mikinn svima þegar ég settist, eða stóð upp. Fór til heimilislæknisins, sem tékkaði mig af nokkuð rækilega. Og vísaði mér síðan á háls-nef og eyrnalækni,“ segir Karl sem fór til hans í gær og fékk greiningu nokkuð hratt og örugglega.
„Þetta var þá stöðusvimi vegna smásteina eða kristalla sem losna inn í jafnvægislíffærinu í innra eyra. Þetta lýsir sér sem hringekjusvimi þar sem allt hringsnýst fyrir augunum á manni, nærri því strax eftir hreyfingu t.d. þegar maður veltir sér í rúmi eða snýr sér snöggt til hliðar.“
Karl segir að sérfræðingurinn hafi velt honum nokkra snúninga á bekknum á stofunni og sviminn hafi horfið eins og dögg fyrir sólu.
„Það var sem sagt Kalli litli sem labbaði út alldeilis sæll og glaður! og hættur að vera skíthræddur.“
Á vef doktor.is kemur fram að stöðusvimi eins og Karl lýsti gangi yfirleitt yfir á 15-30 sekúndum.
„Ef að sviminn lagast ekki af sjálfrum sér þá er meðferðin við þessu gerð hjá lækni með fyrirfram ákveðnu ferli til þess að kristallarnir fari aftur á réttan stað í jafnvægislíffærinu,“ segir á vef doktor.is.