Karl allt annað en sáttur við lögguna: „Það er þessum tveimur konum að þakka að ég dó ekki“

Karl Erlingsson, fyrrverandi handboltaþjálfari, tónlistarmaður og höfundur stórsmellsins Pamela í Dallas, sakar lögreglu um fúsk, mismunun og einelti.

Þetta kemur fram í viðtali við Karl í Fréttablaðinu í dag.

Þar kemur fram að bíl hafi verið bakkað á Karl fyrir einu og hálfu ári þar sem hann var fótgangandi við Lindargötu. Tvær konur urðu vitni að slysinu og tókst þeim að hrópa og veifa meðan Karl dróst með bílnum.

„Það er þessum tveimur konum að þakka að ég dó ekki,“ segir Karl sem lýsir því í samtali við Fréttablaðið að hann gruni að há tónlist í bílnum hafi slævt athygli ökumannsins. Konurnar hringdu strax í lögreglu.

Karl segir að slysvaldurinn hafi lagt í stæði skammt frá og um leið hafi rannsóknargögn farið til spillis. Lögreglumaður sem kom á vettvang hafi svo látið hjá líða að kalla á sjúkrabíl og loks segir Karl að það hafi misfarist hjá lögreglu að halda til haga upplýsingum um vitnin.

Hann fór sjálfur á slysadeild eftir slysið og er örorka hans metin 75% samkvæmt fyrsta mati. Karl hefur ekki enn fengið greiddar bætur en það er framkoma lögreglu í málinu sem svíður mest. Segir hann hana bera öll merki um einelti.

Sjálfur lýsir hann því að honum líði eins og lögregla gruni hann um svik og hafi ranglega gefið sér að hann hafi verið ölvaður þegar slysið varð.

„Þetta mál er í heild sinni svo mikil handvömm hjá lögreglu, svo mikið fúsk og einelti að það hálfa væri nóg. Það er ekki sama Jón og séra Jón,“ segir Karl en nánar má lesa um málið í Fréttablaðinu í dag og á vef Fréttablaðsins.