Karl Ágúst Úlfsson, leikari, leikstjóri og handritshöfundur, minnist Elísabetar Bretlandsdrottningar í skemmtilegri færslu á Facebook-síðu sinni.
Elísabet lést í gær, 96 ára að aldri, og hafa margir minnst hennar með hlýjum orðum og skemmtilegum minningum.
Karl Ágúst rifjar upp þegar hann hjólaði um Evrópu sumarið 1977 ásamt æskuvinum sínum.
„Við vorum að klára menntaskólann og tókum Smyril til Skotlands, hjóluðum síðan yfir skosku heiðarnar og þá ennþá sunnar. Það var ekki fyrr en við komum til Lundúna sem við áttuðum okkur á því að þetta ár átti Elísabet II tuttugu og fimm ára valdaafmæli,“ segir Karl Ágúst í færslu sinni.
Hann segir að þeim hafi í rauninni þótt allt sem snerti hátíðarhöldin af þessu tilefni óheyrilega fyndið, enda höfðu þeir lagt gelgjuna að baki fáum árum áður og voru þar að auki litlir rojalistar.
„En ég keypti mér mynd af drottningunni í járnramma, einmitt til að svala mínum húmorísku þörfum, og gott ef ég stillti henni ekki upp aftur og aftur við rúmstokkinn minn á þeim farfuglaheimilum sem við gistum á það sem eftir lifði ferðalagsins, bara vegna þess hvað mér þótti það fyndið. Og alltaf þótti mér það jafn skelfilega hlægilegt þegar málmleitartæki ráku upp skaðræðispíp og tollverðir heimtuðu að ég opnaði hnakktöskuna mína, hvort sem var í Frakklandi, Hollandi, Belgíu, Þýskalandi, Danmörku eða annars staðar - og ég dró upp mynd af Elísabetu í járnramma.“
Karl segir að þetta sé sú minning hans um Bretlandsdrottningu sem lifir með honum enn þann dag í dag.
„Og hvort sem þið trúið því eða ekki, þá skapaði þetta einhver glettin tengsl á milli okkar sem gera það að verkum að mér er ennþá ágætlega hlýtt til hennar, þó að við höfum aldrei hist og ég aldrei lagst á sveif með því þjóðskipulagi sem hún er fulltrúi fyrir.“