Karl Ágúst Úlfsson, leikari, leikstjóri og handritshöfundur, var í ítarlegu viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins í tilefni þess að hann ætlar sér að kveðja leiksviðið eftir rúmlega fjörutíu ára feril með sýningunni Fíflið. Hann ætlar að snúa sér að skriftum af fullum þunga og kveðst eiga margar skúffur fullar af handritum.
Karl Ágúst er þekktastur fyrir að vera meðlimur Spaugstofunnar ásamt þeim Erni Árnasyni, Pálma Gestssyni, Randveri Þorlákssyni og Sigurði Sigurjónssyni. Þeir félagar framleiddu alls 472 þætti á þrjátíu ára tímabili en minnstu munaði að þeir færu ekki í loftið þegar Stöð 2 blés þættina af rétt áður en þeir áttu að skrifa undir samning.
Árið 1986 höfðu þeir Karl Ágúst, Örn Árna og Siggi Sigurjóns verið með útvarpsþætti á RÚV sem hétu Sama og þegið, þar sem þeir fóru yfir fréttir vikunnar í gamansömum stíl. Félagarnir fengu þá hugmynd að gera sams konar þætti fyrir sjónvarp sem þeir kynntu fyrir Stöð 2 og var hugmyndinni tekið vel fyrst um sinn.
„Síðan erum við mættir upp á Stöð 2 til þess að skrifa undir samning. Samningurinn er tilbúinn og það eina sem vantar á hann er nafnið á þættinum. Við vorum með hugmynd að nafninu Imbakassinn, það þótti svona ekki nógu jákvætt og ekki hvetjandi til áhorfs. Þannig að við erum beðnir um að hugsa þetta aðeins betur og gefum okkur korter, tuttugu mínútur til að pæla í þessu. Við sitjum og spjöllum og á sama tíma er dagskrárstjórinn kallaður út úr fundarherberginu. Hann er í burtu í nokkrar mínútur og þegar hann kemur inn aftur segir hann: „Strákar, það er búið að blása þetta af.““
Viðtalið við Karl Ágúst má lesa í heild sinni hér.