Karl Ágúst Úlfsson er í ítarlegu viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins að tilefni þess að hann ætlar sér að kveðja leiksviðið eftir rúmlega fjörutíu ára feril með sýningunni Fíflið.
Í viðtalinu opnar hann sig meðal annars um tíma sinn í Spaugstofunni sem ætti að vera landsmönnum kunnug er þeir félagarnir, Örn, Pálmi, Randver og Sigurður gerðu grín að íslensku samfélagi.
„Það var okkar hlutverk að snúa út úr því sem var efst á baugi, vekja athygli og draga fram í dagsljósið hluti sem jafnvel flokkast undir spillingu, óeðlilega framkomu gagnvart þeim sem minna mega sín, óeðlilega valdastöðu þeirra sem eru sterkir og eiga nóg af peningum,“ segir Karl Ágúst í viðtalinu.
Spaugstofumenn lentu sjálfir ítrekað upp á kant við yfirvöld og valdamikla aðila í þjóðfélaginu en eitt frægasta dæmið er líklega þegar biskup Íslands, Ólafur Skúlason, kærði þá fyrir guðlast eftir umdeildan páskaþátt Spaugstofunnar 1997.
„Við vorum kærðir fyrir guðlast, við vorum kærðir fyrir klám, við fengum á okkur hótanir um lögbann og vorum sakaðir um ofsóknir á ákveðnu fólki í valdakerfinu. Það voru menn sem reyndu bókstaflega að fá þættina tekna af dagskrá og beittu áhrifum sínum til þess, sem við bara fréttum utan frá, en það heppnaðist ekki,“ segir Karl Ágúst.
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér.