Karl Ágúst með ákall til undirheimanna: „Eigum við ekki að sammælast um að þetta sé orðið ágætt?“

Leikarinn, leikstjórinn og handritshöfundurinn Karl Ágúst Úlfsson skilar köldum kveðjum til innbrotsþjófa í Reykjavík en hann greinir frá því á Facebook síðu sinni að brotist hafi verið inn í bíl hans, og það ekki í fyrsta sinn.

„Ég á ekki neitt sem er þess virði að stela því. Þetta hafið þið, ágæta afbrotafólk, sannreynt nokkrum sinnum, nú með því að brjótast inn í bílinn minn og finna þar engin alvöru verðmæti,“ skrifar Karl Ágúst.

Hann segir þó vanþakklæti vera fjarri sér þar sem innbrotsþjófarnir stálu ekki gamalli veiðistöng, þungu ferðagrilli, beituboxi og gúmmístígvélum sem voru í bílnum. „Þetta kann ég sannarlega að meta.“

„Hitt er önnur saga að þessi gjörningur veldur enn einu sinni leiðindum á báða bóga. Þið sitjið uppi með vonbrigðin yfir að finna ekkert bitastætt, ég þarf að gefa lögregluskýrslu, útfylla tjónatilkynningu og síðan að láta setja í nýja rúðu. Ekkert af þessu er sérstakt áhugamál hjá mér, ótrúlegt en satt,“ segir hann enn fremur og biðlar til undirheimanna í framtíðinni.

„Eigum við ekki að sammælast um að þetta sé orðið ágætt? Það er nóg af vonbrigðum í lífinu þó að þið séuð ekki að auka á þau, bæði fyrir mig og ykkur. Í eitt skipti fyrir öll: Ég er skítblankur listamaður sem berst í bökkum og á ekki nokkurn skapaðan hlut sem ástæða er til að ágirnast.“