Karl Ágúst fór í Bónus og átti kostulegt samtal við afgreiðsludömu um rafhlöður

Karl Ágúst Úlfsson, einn og okkar fremsti leikari, handritshöfundur og leikskáld, skellti sér í Bónus fyrir skemmstu. Þar átti hann kostulegt samtal við starfsmann um rafhlöður.

Karl Ágúst birti eftirrit af samtalinu á Facebook-síðu sinni og er óhætt að segja að hann hafi komið mörgum til að brosa eins og honum einum er lagið. Yfirskrift færslunnar er: Á kassanum í Bónus – örleikrit.

ÉG: Fyrirgefðu, hvar eruð þið með rafhlöður?
KASSASTÚLKA (bendir aftur fyrir sig): Bara hérna.
ÉG (Rýni á vegginn fyrir aftan hana): Ha? Ég sé þær ekki.
KASSASTÚLKA (bendir aftur): Jú, þær eru þarna.
ÉG (sé bara snúrur á veggnum): Nei, það eru engar rafhlöður þarna.
KONA FYRIR AFTAN MIG Í RÖÐINNI (hvíslar): Prófaðu að segja batterí.
ÉG: Fyrirgefðu, ég er að tala um batterí.
KASSASTÚLKA (afar glaðlega): Ó, batterí! Já, þau eru þarna við endann á þarnæsta rekka.

Fjölmargar athugasemdir hafa verið skrifaðar við færsluna og liggur mörgum á hjarta að vita hvað í ósköpunum stúlkan benti á sem hún taldi vera rafhlöður. Karl Ágúst hefur ekki svarað því. Þá koma sumir með aðrar skemmtilegar sögur af misskilningi í verslunum. Ein snýr að gömlum bónda sem kom í kaupfélag og heilsaði ungri afgreiðsludömu.

Bóndinn: Heyrðu væna, ég ætla að fá malt-extrakt.
Stúlkan: Já, ok. Ekkert mál.
Hun fór svo að dunda sér við að raða í hillur. Þannig leið dágóð stund
Bóndinn: ég ætlaði að fá malt-extrakt, væna mín.
Stúlkan: ok. Viltu kannski fá það núna?
Bóndinn: Ja, já. Það væri ágætt.
Stúlkan: Þú sagðir sko að þú vildir malt rétt strax, sko.