Kári vonar að Trump lifi svo hann geti tapað forsetakosningunum

Kári Stefáns­son, for­stjóri Ís­lenskrar erfða­greiningar, kveðst vona að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti lifi það af að hafa fengið CO­VID-19. Eins og kunnugt er greindist Trump með CO­VID-19 í gær­kvöldi eins og eigin­kona hans, Melania.

Fjöl­miðlar vestan­hafs hafa fjallað mikið um málið og bent á að Trump sé í hæsta á­hættu­hópi að veikjast al­var­lega. Bent er á að hann er orðinn 74 ára og þar að auki nokkuð yfir meðal­þyngd. Kári segir að allar líkur séu þó að Trump nái sér fljótt og vel.

„Ég held að hann komi ekki til með að deyja. Líkurnar á því að hann komist út úr þessu eru býsna góðar,“ segir Kári í sam­tali við frétta­vef DV. Hann nefnir að fjórðungur þeirra sem greinast og eru yfir átt­rætt deyi úr sjúk­dóm­mnum.

„Það þýðir þá að 75% líkur séu að lifa af Co­vid-19 sjúk­dóminn. Donald Trump er tölu­vert yngri en það,“ segir hann og bætir við að miklar líkur séu á að hann veikist. „Allir sem sýkjast af þessu geta orðið veikir, sér­stak­lega of­fitu­sjúk­lingar,“ segir hann.

Þá segist Kári vona að Trump jafni sig. „Ég vona heitt og inni­lega að hann lifi svo hann geti tapað þessum kosningum,“ segir hann en ó­hætt er að mæla með við­talinu.