„Jón Ívar, hún er vandrötuð þrönga gatan meðalhófsins og kannski höfum við báðir ráfað út af henni í skoðanaskiptum okkar um sóttvarnir,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Þar svarar hann grein Jóns Ívars Einarssonar, prófessors við læknadeild Harvard-háskóla, sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Þar gagnrýndi Jón Ívar meðal annars Kára og sagði að „vinsælasti maður landsins“ hefði reist honum „níðstöng í fjölmiðlum“ og meðal annars minnst á fjölskylduhagi hans og börn. Jón Ívar og Kári hafa verið á öndverðum meiði um hvaða leiðir séu bestar til að takast á við COVID-19.
Kári segist aldrei hafa litið svo á að Jón Ívar sé minni maður fyrir þá staðreynd að hann hafi tjáð skoðun sína á sóttvörnum á landamærum Íslands sem voru allt aðrar en hans.
„Eins og stendur lítur út fyrir að ég hafi haft rétt fyrir mér vegna þess að faraldurinn hefur blossað upp í löndunum í kringum okkur og er að hjaðna hérlendis en það skiptir bara ekki máli í þessu samhengi,“ segir Kári sem bætir við að það sem fór fyrir brjósti á honum var að Jón Ívar veittist að unglækni sem andmælti málflutningi hans og kærði hann fyrir siðanefnd Læknafélags Íslands.
„Það var ekki drengilegt og hreinlega fyrir neðan allar hellur en það gerist ýmislegt í hita leiksins. Ef ég hefði aldrei gert neitt verra en þetta, Jón, væri slóð mín fegurri en raun ber vitni. Þegar ég benti á að þú ættir hagsmuna að gæta á landamærunum af því þú kæmir einu sinni í mánuði til landsins til þess að sinna börnum þínum hélt ég að ég væri einfaldlega að benda á mannkosti þína. Það er nefnilega sjaldgæft að einstæðir feður leggi þetta mikið á sig til þess að rækta samband við börnin sín,“ segir Kári sem bætir við að lokum:
„Í mínum huga ertu með þessu að sanna fyrir umheiminum, svo ekki verður um villst, að þú sért góður maður. Ég vona að við Íslendingar séum svo heppnir að þú ákveðir að flytjast heim aftur og stunda hér þá læknisfræði sem hefur komið þér til metorða í Boston. Það er ekki vafi í mínum huga að þú sért duglegur, flinkur og góður læknir. Slíkum manni hljótum við eyjarskeggjar að taka opnum örmum,“ segir Kári en í grein sinni í gær sagði Jón Ívar að orðið á götunni í læknastéttinni væri að hann ætti erfitt með að fá vinnu ef hann kysi að flytja heim einhvern daginn.