Kári vill að gamla fólkið fái bólu­setningu fyrst

Kári Stefáns­son gagn­rýnir for­gangs­röðun yfir­valda þegar kemur að dreifingu bólu­efnis vegna CO­VID-19 hér á landi. Hann segir að fólk yfir 85 ára þurfi bólu­setningu fyrst því þau séu í mesta á­hættu­hópnum.

Þetta kom fram í há­degis­fréttum Bylgjunnar í dag. Sam­kvæmt reglu­gerð Svan­dísar Svavars­dóttur, heil­brigðis­ráðu­herra, munu heil­brigðis­­starfs­­menn á bráða­­mót­töku og gjör­­gæslu­­deildum fá bólu­efnið fyrstir, þar á eftir starfs­­menn á CO­VID-19 göngu­­deildum. Ein­staklingar 60 ára og eldri eru svo í sjötta sæti á for­­gangs­listanum.

Kári segir þetta skjóta skökku við: „Vegna þess að þeir sem eru milli 60-70 ára er með innan við tvö prósent líkur á að deyja ef þeir sýkjast, 75 ára og eldri eru með 8,5% líkur á að deyja og 85 ára og eldri eru um 28% líkur á að deyja.“

Hann segir að notast verði við gögn þegar slíkar á­kvarðanir séu teknar. Kári tekur þó fram að það sé ekki hans hlut­verk að segja Svan­dísi fyrir verkum:

„Við erum með mjög góðan heil­brigðis­ráð­herra og ég er alveg viss um að þegar hún fer að skoða þetta nánar þá hniki hún ein­hverju til, það væri mjög líkt henni.“