Kári vaknaður: Batinn virðist „framar öllum vonum og kraftaverki líkastur“

Kári Kárason, sem varð fyrir skotárás á Blönduósi aðfaranótt 21. ágúst síðastliðinn, er kominn til meðvitundar. Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, staðfestir við Fréttablaðið að stefnt sé að því að skrá framburð hans í dag.

Kári var skotinn í kviðinn þegar árásarmaður braust inn á heimili hans og eiginkonu hans, Evu Hrundar Pétursdóttur. Eva lést í árásinni eins og árásarmaðurinn sjálfur.

Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að það mat lögreglu og heilbrigðisstarfsfólks að heilsa hans sé orðin nógu til að hægt sé að skrásetja vitnisburð hans segi ákveðna sögu. Lýsti aðstandandi bata Kára í samtali við Fréttablaðið þannig að hann „virtist framar öllum vonum og kraftaverki líkastur.“

Von stendur til að framburður Kára hafi mikið vægi í að púsla saman máls­atvikum.