Kári um breytingar á að­gerðum: „Hefði viljað sjá af­léttingar í sam­ræmi við löndin í kringum okkur“

Kári Stefáns­son, for­stjóri Ís­lenskrar erfða­greiningar, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að breytingar ríkis­stjórnarinnar á sótt­varna­að­gerðum sem kynntar voru í dag sýna að ríkis­stjórnin fari var­lega af stað.

„Ég hefði viljað sjá af­léttingar sem eru meira í sam­ræmi við það sem við erum sjá í löndunum í kringum okkur. En ég skil þetta mjög vel og það er erfitt að búa til hvassa gagn­rýni á þetta,“ segir Kári í sam­tali við Frétta­blaðið spurður hvað hann hefði viljað sjá ríkis­stjórnina gera í dag.

Sam­kvæmt nýju reglunum þurfa ein­staklingar sem út­settir eru fyrir smiti utan heimilis síns einungis að fara í smit­gát en börn og ung­lingar verða undan­þegin smit­gát.

Kári segir í sam­tali við Frétta­blaðið að hægt sé að fara í af­léttingar á marga vegu og að engin ein leið sé sú rétta.

„Bæði sótt­varna­læknir og ríkis­stjórn hafa verið mjög var­kár frá byrjun þessa far­aldurs og ég yrði hissa ef þau héldu því ekki á­fram,“ segir Kári og bætir við að þetta sé erfið staða til að vera í, sótt­varna­læknir og ríkis­stjórnin þurfi að taka á­kvarðanir sem hafi á­hrif á líf fólks og kunni jafn­vel að hafa á­hrif á heilsu fólks.

„Og ég skil mjög vel að þau skuli vera kvíðnari en ég sem ber ekki á­byrgð á neinu,“ segir Kári.