Kári Stefánsson og Íslensk Erfðagreining lögðu Persónuvernd í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
„Fyrst og fremst var þetta mál heldur óhepplegt.“ segir Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar í samtali við Fréttablaðið um málið.
Málið varðar ákvörðun Persónuverndar frá því í nóvember árið 2021 um að ÍE hafi brotið persónuverndarlög með því að gera rannsóknir á fyrstu mánuðum COVID-19. Ástæðan fyrir því var að fyrirtækið tók blóðsýni til rannsóknar þriðja til sjöunda apríl árið 2020, en fékk ekki samþykki frá Vísindasiðanefnd fyrr en síðasta daginn, sjöunda apríl.
Hins vegar féllst héraðsdómur ekki á rök Persónuverndar.
„Persónuvernd er mikilvæg stofnun en þetta var gerræðisleg ákvörðun sem mun grafa undan henni.“ segir Kári „Þetta hljómuðu eins og fyrstu kaflar í bók um útrýmingu mannkyns og það voru allir bara að gera sitt besta. Þetta meikar bara engan sense að dæma einhvern fyrir eitthvað svona nokkrúm mánuðum síðar.“ bætir hann við um stöðuna í samfélaginu þegar heimsfaraldurinn var að byrja.
„Ég vona að traustið á stofnunni minnki ekki. Þarna er fullt af góðu fólki að vinna mikilvæga vinnu.“ segir hann og tekur fram að í gegnum tíðina hafi sambandið við persónuvernd verið gott og vonast til að það verði það til frambúðar.
Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.