Kári Þórisson er látinn

Veitingamaðurinn Kári Þórisson er látinn, áttræður að aldri, en hann var kunnur hér á landi fyrir veitingarekstur sinn í borginni. Stofnaði hann til dæmis veitingastaðina Caruso og Litla ljóta andarungann.

Greint er frá andláti Kára í Morgunblaðinu í dag.

Kári fæddist þann 24. apríl 1942 í Krossanesi og ólst upp í Reykjavík og í Hvalfirði.

Hann lærði til þjóns í Kaupmannahöfn áður en hann sneri aftur til Íslands og rak veitingastaðinn Skeifuna við Reykjavíkurtjörn. Hann stofnaði svo Caruso í Bankastræti og Lilja ljóta andarungann í Lækjargötu. Síðari ár dvaldi hann langdvölum á Spáni, að því er segir í Morgunblaðinu.

Eftirlifandi eiginkona Kára er Guðrún Jóhannesdóttir og er dóttir þeirra Sigurveig matreiðslumeistari. Hún er gift Agli Helgasyni fjölmiðlamanni og er sonur þeirra Kári tónlistarmaður.