Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er svartsýnn á að viðræður hans og Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis við Pfizer muni skila árangri. Þetta kemur fram í viðtali við Kára sem birtist á mbl.is í dag.
Kári og Þórólfur hafa átt í viðræðum við lyfjarisann um að fá bóluefni í rannsóknarskyni fyrir um 70% þjóðarinnar, en svo virðist sem lítill gangur sé í þeim viðræðum. „Það lítur út fyrir að þetta ætli ekki að ganga hjá okkur,“ segir hann og bætir við að minnsta kosti séu viðræðurnar ekki að hreyfast mjög hratt.
Þá segir Kári að Evrópusambandið hafi staðið sig illa í samningaviðræðum um bóluefnið, en bent er á í fréttinni að Ísraelar geti nú lokið því að bólusetja alla einstaklinga, 16 ára og eldri, fyrir marslok.
„Þetta er bara dæmi um það hvað það getur verið mikilvægt að geta hagað sér eins og sjálfstæð þjóð óháð öðrum, það er það sem Ísrael er að gera,“ segir hann meðal annars.