„Ég hef það á tilfinningu að það verði gripið til mjög harðra ráðstafanna í dag,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í samtali við Fréttablaðið.
Viðbúið er að smittölur dagsins verði háar eftir tiltölulega rólega tíð undanfarnar vikur. Kári segir við Fréttablaðið að um 15 innanlandssmit hafi verið greind í gær, en hann kveðst þó ekki hafa upplýsingar um fjölda þeirra sem voru utan sóttkvíar.
Kári segir að breska afbrigðið hafi verið ríkjandi upp á síðkastið og telur hann að staðan nú kalli á endurskoðun.
Fréttina má lesa í heild sinni hér en í henni veltir Kári einnig fyrir sér sögu tveggja Ítala sem komu til landsins á dögunum, annar var bólusettur en hinn ekki, en báðir reyndust jákvæðir í seinni skimun hér á landi.