Kári svarar fyrir umdeilda færslu Eddu Falak: „Það er ekki verið að tala um mig“

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segist ekki nenna að taka þátt í stjórn SÁÁ á sama tíma og gríðarlegur órói er í kringum samtökin. Þetta sagði Kári í samtali við Stundina í gærkvöldi.

Allt hefur logað stafnana á milli innan SÁÁ undanfarna daga og síðast í gær ákvað Þóra Kristín Ásgeirsdóttir að draga framboð sitt til formanns til baka. Margir bundu vonir við að Þóra Kristín myndi færa þessum mikilvægu samtökum nauðsynlegan stöðugleika en annað virðist ætla að koma á daginn.

Virkur í umræðunni um Covid

Í yfirlýsingu sem Þóra sendi frá sér í gær sagði hún ýmsa aðila vinna að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði hennar úr hennar einkalífi. Þá sé það sýnu alvarlegra að fyrrverandi stjórnendur SÁÁ stundi aðför að Kára Stefánssyni, en Þóra Kristín er upplýsingafulltrúi Íslenskrar erðagreiningar og náin bandamaður Kára.

Málið snýr meðal annars að færslu sem Edda Falak birti í hópnum Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu en þar sagði Edda að kona sem „varð fyrir“ vændi hafi leitað til hennar og gerandi hennar væri „þekktur maður í samfélaginu og virkur í umræðunni um covid“ eins og hún orðaði það. Leitaði hún eftir fleiri sögum af þessum manni án þess þó að nafngreina hann.

Kornið sem fyllti mælinn

Arnþór Jónsson, fyrrverandi formaður SÁÁ, sendi Þóru Kristínu bréf í gær sem stjórn SÁÁ fékk afrit af þar sem hann gerði færslu Eddu að umtalsefni. Sagði hann meðal annars orðrétt: „Mér hefur verið sagt að gerandinn sé Kári Stefánsson. Getur þú staðfest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?“

Þetta erindi Arnþórs var kornið sem fyllti mælinn hjá Þóru Kristínu og Kára og segir Kári það af og frá að hann sé umræddur maður sem Edda Falak vísar til.

„Ég er hundrað prósent viss um að það er ekki verið að tala um mig, öðruvísi en að fólk sé að skálda,“ sagði Kári við Stundina í gærkvöldi.

Spurður um ástæður þess að hann sé að hætta í stjórn, segir hann:

„Ég er að hætta vegna þess að í undirbúningi fyrir þennan fund þar sem kjósa átti nýjan formann er verið að draga fram skít um þá sem eru í þessari stjórn, til dæmis að ég ætlaði að taka yfir SÁÁ. Ég nenni ekki að standa í þessu þegar svona mikill órói er.“

Hvað er að hjá okkur?

Kári segist hafa hjálpað til við að koma ótrúlega miklum fjölda fólks inn á Vog og honum þyki vænt um samtökin. Hann sé þó með tárum yfir hvernig komið sé fyrir þeim.

Kári segist enn fremur hafa stungið upp á því að Þóra Kristín færi í formannsframboð í samtökunum.

„Ég stakk upp á því. Hún er röggsöm kona og ofboðslega klár og fylgin sér og ég held það hafi verið gott hjá henni að hætta við formannsframboð. Nú getur fólkið í SÁÁ tekið skref aftur á bak og spurt: Hvað er að hjá okkur og hvað viljum við vera?“ sagði Kári við Stundina í gærkvöldi.