Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hvetur landsmenn til að láta bólusetja sig með bóluefni AstraZenca, fyrir sjálfa sig og aðra. Hann bendir á að efnið sé næstum hættulaust og veiti góða vörn gegn Covid-19 veirunni.
„Það má hins vegar ekki gleyma því að það eru engin lyf sem virka á sjúkdóma sem eru með öllu hættulaus og á það sama við um bóluefni,“ útskýrir Kári á Facebook síðu sinni.
„Þess vegna er það kýrskýrt að þegar lyfi eða bóluefni er beitt á tugir milljóna manns þá verða einhverjir fyrir aukaverkunum.“ Í tilfelli bóluefnis AstraZenica sé sá fjöldi hverfandi miðað við þann sem á bóluefninu líf sitt og heilsu að þakka.
Ekki tilbúin í myndatöku
„Ég lét bólusetja mig með þessu ágæta bóluefni fyrir nokkrum vikum og hlaut af því engan skaða annan en þann að vegna þess að ég var kallaður inn með litlum fyrirvara þá var ég ekki rétt búinn til athafnarinnar og leit út eins og það óálitlega gamalmenni sem ég er á myndum sem voru teknar af athöfninni.“
Kári ítrekar mikilvægi þess að bólusetja sig og hræðast ekki bóluefnið. „Í guðannabænum þiggið björgina og látið bólusetja ykkur þegar boðið.“