Kári Stef og Sig­ríður takast hart á um af­glæpa­væðingu fíkni­efna: „ Sig­ríður, þetta er dá­lítið ljótt“

Sig­ríður Ander­sen, fyrr­verandi dóms­mála­ráð­herra segir að stríðið gegn fíkni­efnum sé tapað og það þurfi að fara nýja leiðir. Hún styður samt ekki fyrir­liggjandi hug­myndir um af­glæpa­væðingu neyslu­skammta. Þetta kemur fram frétt Vísi en hún og Kári Stefáns­son tókust á í Ís­landi í dag í gær.

Sig­ríður segist að­hyllast frelsi að eigin sögn í víðum skilningi í fíkni­efna­málum en að hennar mati er af­glæpa­væðing ekki endi­lega lausnin.

„Mér finnst að þarna sé verið að nota í rauninni veikindi fólks sem ein­hvers konar tróju­hest til að gera fíkni­efni í raun frjáls hér á landi. Ég held að nái svona frum­varp fram að ganga sé hætta á að verið sé að normal­isera svona notkun al­mennt og að fólk fari að líta á þessa neyslu­skammta sem hættu­lausa,“ segir Sig­ríður.

„Ég held að þetta sé ör­lítið lýð­skrum, sýndar­mennska, hjá fólki sem raun­veru­lega vill segja að stríðið gegn fíkni­efnum sé tapað, að við eigum því að fara aðrar leiðir, en þorir ekki að gera það,“ segir Sig­ríður.

Þessu svaraði Kári: „Sko, Sig­ríður, þetta er dá­lítið ljótt. Þetta fólk hefur kannski aðra skoðun en þú, en það er engin á­stæða til að ætla að það sé ekki ein­lægt í vilja sínum til að breyta af­stöðunni til fíkni­sjúk­dóma.“

Sigríður telur það væri hægt að hjálpa sjúklingum og fíklum miklu betur með annars konar útfærslu ef menn vilja beita lögum. En þó fyrst og fremst með því að auka aðstoð og þjónustu við þetta fólk sem að hennar mati frumvarpið gengur ekki út á.

Kári kveðst telja það mjög mikilvægt að ganga frá því sem allra fyrst að gera neysluskamma löglega, þótt hann skilji vanda lögreglunnar í tengslum við það.

Hægt er að horfa á sam­tal þeirra hér.