Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er líklega manna fróðastur hér á landi um kórónuveiruna sem valdið hefur miklu fjaðrafoki undanfarin tvö ár. Margir spáðu því að faraldurinn tæki enda innan fárra mánaða frá upphafi hans en annað hefur þó komið á daginn.
Kári var í viðtali á Stöð 2 í gærkvöldi þar sem hann spáði meðal annars í spilin fyrir komandi tíma, hvort veiran haldi áfram að hafa áhrif á daglegt líf okkar eða hvort hún muni fjara út.
Ómíkron-afbrigðið hefur látið mikið að sér kveða síðustu vikur og komið af stað smitbylgju af áður óþekktri stærðargráðu. Þó eru vísbendingar um að alvarleg veikindi af völdum afbrigðisins séu sjaldgæfari.
Kári er þeirrar skoðunar að veiran sé að þróast í þá átt sem búast mátti við.
„Þá er hún að fylgja þeirri reglu að stökkbreytast þannig að hún verði smitnæmari en valdi minni skaða. Hún er að hlúa að eigin hagsmunum, og á þann hátt hagar hún sér mjög svipað íslenskum alþingismönnum, sem um leið og þeir eru komnir á þing fara að hlúa að sjálfum sér í stað þjóðarinnar. En allt um það,“ sagði Kári af sinni alkunnu orðheppni.
Varðandi framtíðina sagðist Kári ekki telja ólíklegt að þriðji skammtur bóluefnis komi til með að veita þá vörn sem nauðsynleg er.
„Og mér finnst ekki ólíklegt að þetta komi til með að fjara út á næsta hálfa ári til eins árs. Mér fyndist þetta lógískt,“ sagði Kári sem sagðist telja líklegt að veiran yrði fyrir bí næsta haust.