Kári skrifar til föður síns sem lést fyrir 30 árum – Sagði vera meira líf í honum en út­varps­stjóra

„Stefán Jóns­son, ég reikna með að þú sért svo­lítið hissa á að ég skuli skrifa þér bréf, löngu dauðum manninum.“ Svona hefst bréf Kára Stefáns­sonar til Stefáns Jóns­sonar, föður síns sem lést fyrir rúm­lega þrjá­tíu árum. Bréfið hans birtist í Frétta­blaðinu í dag.

Stefán Jóns­son, út­varps­stjóri, neitaði að láta spila nýja út­setningu ís­lenska þjóð­söngsins, í anda þeirrar út­gáfu banda­ríska þjóð­söngsins sem Jimi Hendrix gerði ó­dauð­lega á Woodstock-tón­listar­há­tíðinni 1969, sem síðasta lag fyrir fréttir í dag, 17. júní.

„Þegar ég fór að velta því fyrir mér hverjum meðal nú­verandi starfs­manna Ríkis­út­varpsins ég ætti að senda þetta erindi komst ég að þeirri niður­stöðu að þótt þú hafir verið grafinn árið 1990 sé með þér tölu­vert meira lífs­mark en með út­varps­stjóra og hans nánustu sam­­starfs­mönnum,“ skrifar Kári.

„Ekki fór á milli mála að það var skylda mín að koma flutningi tví­menninganna á fram­færi og ég hringdi í Stefán nafna þinn Ei­ríks­son út­varps­stjóra og lagði til að hann léti spila þetta sem síðasta lag fyrir fréttir á 17. júní. Ég sendi honum upp­tökuna og hann sagðist ætla að skoða málið,“ skrifar Kári og segist hafa fengið skila­boð frá Stefáni fljót­lega sem hljóðuðu svo:

„Stöldrum strax við 3. gr. Laga um þjóð­sönginn, þar sem segir að hann skuli ekki flytja eða birta í annarri mynd en hinni upp­runa­legu gerð. Setur okkur aug­ljós­lega skorður. Bkv. SE.“

Kári segir þjóðina verða að hlusta á „þessa snilldar­út­setningu“ á þjóð­söngnum alls staðar annars staðar en í Ríkis­út­varpinu, eins og YouTu­be. „Ég reikna með því að þú skiljir að með því erum við ekki að halda fram hjá Ríkis­út­varpinu vegna þess að maður getur ekki haldið fram hjá þeim sem vill mann ekki“ skrifar Kári.

Útgáfuna af þjóðsöngnum sem Kári vildi heyra má finna hér.