Kári skorar á Willum: „Þessar undan­þágur voru alveg fá­rán­legar“

Kári Stefáns­son skorar á Willum Þór Þórs­son að viður­kenna að hann hafi gert mis­tök þegar hann hafnaði sumum til­lögum Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis og veitti undan­þágur til veitinga­manna og tón­listar­manna í að­draganda jóla.

Kári ræðir stöðuna á far­aldrinum við Frétta­blaðið. „Ég skil ekki þann heil­brigðis­­mála­ráð­herra, sem er ný­búinn að taka við störfum og á­­kveður sem full­­trúi ríkis­­stjórnarinnar í fyrsta skipti að hafna til­­lögum sótt­varna­­læknis,“ segir Kári.

„Ég bara skil ekki hvernig manninum dettur þetta í hug. Þetta er ekki bara al­var­­legt sem ein­stakt fyrir­­brigði heldur er þetta ekki góð vís­bending um það hvernig þessi heil­brigðis­­mála­ráð­herra kemur til með að haga sér í em­bætti sínu,“ segir Kári.

„Þessar undan­þágur voru alveg fá­rán­­legar. En taktu eftir því að með þessu er hann líka að eyði­­leggja orð­stír ríkis­­stjórnar, þeirrar ríkis­­stjórnar sem er búin að vera í gegnum allan þennan far­aldur og hefur staðið sig alveg of­­boðs­­lega vel,“ segir Kári og and­­varpar.

Við­tal Frétta­blaðsins við Kára.