Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningu, ræddi um kórónaveirufaraldurinn í nýjum hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar en Kári fór ekki mjúkum höndum um Donald Trump Bandaríkjaforseta. Í þættinum benti Kári á það að Bandaríkin og Bretland hafi farið sérstaklega illa út úr faraldrinum. Aðspurður um hvað hafi farið úrskeiðis sagði Kári ýmislegt liggja þar að baki.
„Þeir eru með ríkisstjórn sem er leidd af manni sem að er ekki beinlínis smekklegur, virðist vera með einhvers konar mjög erfiðan sjúkdóm í heila sem gerir það að verkum að heilinn á honum virki ekki nema að hluta til,“ segir Kári og bætir við að hann fái ekki betur séð en að það sé málið.
Sölvi ákvað í kjölfar yfirlýsinga Kára að bera upp spurningu um Donald Trump en áður en Sölvi fékk tækifæri til að spyrja spurningarinnar sagði Kári að hann kærði sig ekki um að tala um Trump. Sölvi ákvað þó loks að bera fram spurninguna sem fólst í misræmi milli þess sem Trump segir og því sem hann gerir og ákvað Kári að svara því.
„Það sem Donald Trump gerði, ef við hugsum um Donald Trump í tengslum við þessa veiru, er að hann lokaði skrifstofunni sem að átti að hafa eftirlit með faraldri smitsjúkdóma fyrir tveimur árum. Hann ákvað að hann þyrfti ekki á henni að halda því hann vissi allt sjálfur sem þurfti að vita um faraldra, þannig að hann lokaði þeirri skrifstofu,“ segir Kári og bendir á að sú skrifstofa hefði átt að bregðast við fyrstu upplýsingum um faraldurinn.
„Þannig það er ekki bara það sem Donald Trump segir, það er ekki bara það sem Donald Trump frussar út úr sér, þegar hann talar á Twitter og svo framvegis, það er líka það sem Donald Trump gerir og hann er stórhættulegur, hefur reynst bandarískri þjóð afskaplega dýr þegar kemur að þessum faraldri.“
Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan: