Kári segir Þórarinn fikta í SÁÁ: „Hann getur ekki hætt“

Kári Stefánsson, sem sagði af sér sem stjórnarmaður í SÁÁ, segir að Þórarinn Tyrfingsson, fyrrverandi formaður, sé að trufla starfsemina og geti ekki hætt að hafa skoðanir á því sem verið er að gera.

Kári sagði í samtali við Vísi að sögusagnir um að hann sé vændiskaupandinn sem Edda Falak auglýsti eftir og varð að uppnámi innan stjórnar SÁÁ, bíti ekki á hann en umræðan sé erfið fyrir börnin hans. Ítrekaði Kári að hann væri ekki umræddur maður.

Kári sagði svo að illdeilurnar innan SÁÁ megi rekja til Þórarins. Þórarinn var yfirlæknir á Vogi og byggði samtökin upp.

„Hann vann þrekvirki og gerði það á flottan og hetjulegan hátt. Svo ákveður hann að fara á eftirlaun 2017 og það reynist honum erfiðara en hann hélt. Hann getur ekki hætt að hafa skoðanir á því sem fólkið er að gera sem er að stjórna þessu meðferðarsviði. Og hann fer, að mati fólksins sem vinnur þar núna, að fikta í þessu, trufla þetta og vera erfiður þeim,“ sagði Kári.

„Arnþór fer að punda ásökunum á stjórnina um allt milli himins og jarðar. Um ásakanir frá Sjúkratryggingum Íslands um að óreiða hafi verið á því hvernig reikningar eru sendir til SÍ, og staðreyndin er sú að líklega var þar óreiða.“