Kári segir fíflalæti í kringum landsliðið: „Þetta eiga að vera keppnismenn“

Kári Árnason, einn besti varnarmaður í sögu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, er ósáttur við þá léttúð sem einkennt hefur æfingar karlalandsliðsins að undanförnu.

Ísland vann nauman 1-0 sigur á San Marínó í gærkvöldi en íslenska liðið lék illa í leiknum og má í raun teljast heppið að hafa unnið gegn lægst skrifaða landsliði heims samkvæmt styrkleikalista FIFA.

Kári og Rúrik Gíslason, fyrrverandi landsliðsmaður, voru sérfræðingar í setti hjá Viaplay og þar barst talið að svipmyndum af æfingum landsliðsins sem KSÍ hefur birt á samskiptamiðlum síðustu mánuði. Sagðist Kári vera ósáttur við að sjá einstaklinga í leikjum á æfingasvæðinu þar sem hlutirnir ættu að teljast alvarlegir.

Fréttablaðið greindi frá þessu.

„Ég er búin að sjá klippur af æfingum, þetta er alvarleg staða. Það brunnu allir heitar fyrir landsliðið en félagsliðið hjá okkur. Það vill þannig til að það er gaman að spila fótbolta. Þetta eiga að vera keppnismenn, það sem ég er að sjá af æfingum að þá eru þetta fíflalæti. Ég þoldi ekki svona, einhverjir leikir. Köttur og mús eða eltingaleikur, hvað er næst? Dimmalimm,“ sagði Kári og var augljóslega ekki skemmt.

„Það er gaman í fótbolta, mér finnst ekki lengur gaman í dimmalimm. Það fór í taugarnar á mér og mig langaði að segja það.“

Kári er einn leikjahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi og var algjör lykilmaður í vörn liðsins þegar það fór alla leið í 8-liða úrslit Evrópumótsins 2016.