„Þeir eru að öllum líkindum að eyðileggja þetta fyrir okkur,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í Fréttablaðinu í dag.
Blaðið greinir frá því að Danir hafi blandað sér í viðræður Íslendinga við lyfjarisann Pfizer en eins og komið hefur fram voru viðræður í gangi um að fá bóluefni til að tryggja hjarðónæmi hér á landi.
Kári segir að trúnaðarbrestur hafi átt sér stað hjá umboðsmanni Pfizer í Skandinavíu, danskri konu að nafni Mette, en hún var á fundi sem Kári og Þórólfur áttu við vísindamenn Pfizer.
Aðeins tveimur dögum eftir fundinn fékk Kári skilaboð frá forstöðumanni sóttvarnastofnunar Danmerkur þess efnis að Danir hefðu verið í viðræðum við Pfizer. „Hann sagði að Mette hefði sagt þeim frá viðræðunum og hann ætlaði að reyna að sjá til þess að Danir fengju að vera með,“ segir Kári.
Kári telur fráleitt að Íslendingar og Danir geti verið saman í verkefninu, enda Ísland með ákveðna sérstöðu umfram Danmörku.
„Mette hafði ekki heimild til að segja frá þessu, hún kjaftaði frá, og þeir ætla að reyna að lauma sér inn í þetta á einhvern máta sem ekki er hægt,“ segir hann við Fréttablaðið. Kári reiknar með að heyra frá Pfizer um framhald málsins í þessari viku, hugsanlega í dag eða á morgun.