„Það er illvígur veirufaraldur að ganga yfir landið. Það var okkar mat og annarra að það væri mikilvægt að geta fylgst með útbreiðslu veirunnar og því hvernig hún stökkbreytist þegar hún ferðast milli fólks. Við buðumst til þess að hlaupa undir bagga með heilbrigðiskerfinu og skima fyrir veirunni og raðgreina hana þar sem hún finnst þannig að það væri vitað hvar hún er og í hvaða formi. Það leit út fyrir að boð okkar væri þegið.“
Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar á Facebook. Það vakti mikla athygli í gær þegar Kári greindi frá því að Íslensk erfðagreining væri reiðubúin til að leggja fram hjálparhönd varðandi skimun á kórónaveirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Nú er komið í ljós að Kári og hans fyrirtæki þurfa að sækja um sérstakt leyfi. Kári er afar ósáttur við þetta og segir:
„Vísindasiðanefnd/Persónuvernd líta svo á að þessi tilraun okkar til þess að taka þátt í aðgerðum heilbrigðiskerfisins beri að líta á sem vísindarannsókn og við yrðum að sækja um leyfi til þeirra. Það munum við ekki gera vegna þess að af okkar hálfu átti þetta að vera þátttaka í klíniskri vinnu en ekki vísindarannsókn.“
Þá segir Kári að lokum: „Þess vegna verður ekkert af okkar framlagi að þessu sinni. Þetta er endanleg ákvörðun.“