Kári: Næstu sex vikur skipta miklu máli

Kári Stefáns­­son, for­­stjóri Ís­­lenskrar erfða­­greiningar, verður gestur frétta­­skýringa­þáttarins Kveiks í kvöld. Búið er að birta stuttan út­­drátt úr þættinum á vef RÚV þar sem Kári segir meðal annars að við þurfum vanda mjög til verka næstu vikurnar.

Dag­­legum til­l­­felum CO­VID-19 hefur farið heldur fækkandi að undan­­förnu, en undan­farinn sólar­hring greindust 33 innan­­lands­­smit. Fjór­tán daga ný­­gengi innan­­lands­­smita á hverja 100 þúsund íbúa er nú 248,7 en var þegar mest var 290,7 þann sex­­tánda þessa mánaðar. Kúrfan er því á niður­­­leið.

Kári segir í við­talinu að vafa­­samt sé að anda léttar þó dag­­legum til­­­fellum fækki eins og raunin hefur verið síðustu daga. „Við verðum að halda á­­fram, að minnsta kosti næstu sex vikurnar, að vanda okkur gífur­­lega,“ segir hann.

Kári hefur áður talað um mikil­­vægi tvö­faldrar skimunar á landa­­mærunum og bendir hann á að staðan væri marg­falt verri ef hún hefði ekki verið tekin upp. Kári kveðst bjart­­sýnn á að okkur takist að ná far­aldrinum niður með sam­stilltum að­­gerðum.

„Við erum ey­land, og við eigum að geta haldið þessu í skefjum eins vel eins og nokkur önnur þjóð.“