Kári kominn með nóg af „eldgamalli púkalegri veiru í bell-bottoms“

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir í samtali við Fréttablaðið að hann hafi lítinn áhuga á Covid-heimsfaraldrinum sem stendur.

„Ég hef lokað skilningarvitum mínum fyrir öllu tengdu Covid,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, um heimsfaraldurinn, en telur þó líklegt að honum fari að ljúka. Kári lýsir veirunni sem „eldgamalli púkalegri veiru í bell-bottoms“.

Hann bendir þó á mikilvægi örvunarskammta af bóluefni.

Þá lýsir hann því hvernig mótefnið við kórónuveirunni virki, og notar sjálfan sig og mælieinguna títer til þess, sem er notað til að mæla mótaefnamagn í blóði.

„Eftir að ég fékk þriðja skammtinn í ágúst í fyrra var ég með 17.500 títer,“ er haft eftir Kára sem bætir við að þegar liðið hafi fram á vor hafi gildið verið komið niður í 2.750. „Ég sýktist síðan af veirunni í apríl og eftir það var ég með 63.000 títer.“ Kári segir að þetta séu ekki flókinn vísindi og bendir á að Covid sé ólík mörgum öðrum veirusýkingum að því leyti að oftar þurfi að skerpa á mótefninu með örvunarskömmtum.