Kári hringdi í Björn Inga áðan og leið­rétti hann: „Svona menn lífga upp á til­veruna“

Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, segir frá býsna skemmti­legu at­viki sem átti sér stað í dag. Þá hringdi Kári Stefáns­son, for­stjóri Ís­lenskrar erfða­greiningar, í hann og leið­rétti hann.

Þannig er mál með vexti að fyrr í dag skrifaði Björn Ingi færslu um hið ó­trú­lega af­rek lækna­vísindanna að komið sé á­hrifa­ríkt bólu­efni gegn CO­VID-19 á markað, skömmu eftir að veiran fór að láta til sín taka.

Í upp­haf­legri færslu sinni sagði Björn Ingi meðal annars:

„Ó­trú­legt af­rek lækna­vísindanna að komið sé á­hrifa­ríkt bólu­efni ári eftir að nýr heims­far­aldur brýst út og að fyrsti Ís­lendingurinn hafi fengið það í æð í beinni út­sendingu.“

Það slæddist lítil villa inn í textann hjá Birni Inga sem Kári tók eftir. Björn Ingi segir í færslu núna um miðjan dag:

„Síminn hringir. Kári Stefáns­son er á línunni: „Björn Ingi, ég las statusinn þinn. Það er ekki rétt að bólu­efninu sé dælt í æð. Því er dælt inn í vöðvann.“ Ætlar þó að horfa fram hjá þessari yfir­sjón blaða­mannsins og lofar að halda á­fram með Þór­ólfi að ýta á eftir meira bólu­efni. „Heyri í þér!“ Þar með er skellt á. Svona menn lífga upp á til­veruna.“

Örsaga úr hversdeginum #96: Síminn hringir. Kári Stefánsson er á línunni: „Björn Ingi, ég las statusinn þinn. Það er...

Posted by Björn Ingi Hrafnsson on Þriðjudagur, 29. desember 2020