Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segist halda að við höfum ekki staðið okkur sérstaklega vel þegar kemur að því að útvega bóluefni.
Þetta segir Kári í viðtali við fréttavef DV en kergju er farið að gæta vegna misvísandi upplýsinga um komu bóluefnis gegn COVID-19 til landsins. Stutt er síðan talað var um að bólusetning yrði kláruð á fyrri hluta næsta árs en nú er komið annað hljóð í strokkinn og óvíst hvort bólusetningu verði lokið fyrr en undir lok næsta árs.
Kári segist halda að við höfum reitt okkur of mikið á samflot með öðrum þegar kemur að því að nálgast bóluefni.
„Þetta er harður heimur sem við búum í. Það varð alveg ljóst í upphafi þessa faraldurs að þegar á reynir þá er þarna bara hver fyrir sig og enginn fyrir aðra,“ segir hann og bætir við að það hafi verið einfeldningsháttur að ætla að reiða sig á Evrópusambandið. Nú séum við að borga prísinn fyrir að hafa ekki kannað málið mikið, mikið fyrr.