Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sparar ekki stóru orðin í garð Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra í viðtali við Vísi. Kári er vægast sagt ósáttur við þá ákvörðun ráðherrans að veita undanþágur fyrir veitingamenn og tvo tónleikahaldara frá samkomutakmörkunum sem tóku gildi á miðnætti.
Kári sagði við mbl.is í morgun að 518 smit hefðu greinst í heild hér, innanlands og á landamærunum.
„Þetta eru ansi stór mistök. Mistök í þessari stöðu eru býsna alvarlegri heldur en þegar menn eru fótboltaþjálfarar,“ segir hann en Willum Þór er fyrrverandi knattspyrnuþjálfari.
„Ég held að þetta séu byrjunarmistök hjá góðum manni sem er allt í einu orðinn heilbrigðisráðherra. Það var ekkert verra hægt að gera heldur en að gefa undanþágu fyrir vínveitingastaði í dag. Þetta er akkúrat sá dagur sem menn safnast saman“, segir Kári við Vísi.