Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, skýtur föstum skotum að Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, háskólaráði, og Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra í aðsendri grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag.
Í greininni gagnrýnir Kári þau ummæli rektors að siðanefnd háskólans beri ekki að rannsaka meintan ritstuld Ásgeirs Jónssonar, seðlabankastjóra, sem greint var frá á síðasta ári.
„Ásgeir gaf út bók á síðasta ári þar sem hann setur fram, sem sínar, röksemdir til stuðnings kenningar nokkurrar um áhrif efnahagsmála á sögu landnáms. Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og mikill sérfræðingur um landnám, benti á að hann hefði birt sömu röksemdir í bók sinni sem kom út átta árum áður og það hefði verið við hæfi og í samræmi við hefð og siðareglur að Ásgeir vitnaði í hana,“ segir Kári.
Ásgeir hefur alfarið hafnað því að hafa stundað ritstuld og birt ítarlegar skýringar á sinni hlið. Hann hafi ekki einu sinni lesið bók Bergsveins. Kári segir þær skýringar ekki halda vatni:
„Þetta þykir ekki haldbær skýring vegna þess að áður en þú setur fram kenningar á fræðasviði sem þú kallar þínar eigin er ætlast til þess að þú þekkir allar þær kenningar sem í gangi eru um sama efni,“ segir hann.
„Nú getur öllum orðið á í messunni og Ásgeir hefur sýnt okkur upp á síðkastið að hann sem seðlabankastjóri er engin undantekning í því efni og hvers vegna ætti hann þá að vera undantekning sem fræðimaður? Ef bók Bergsveins fór fram hjá honum og hann er sammála því að kenningar þeirra séu þær sömu eða keimlíkar átti hann einfaldlega að biðjast afsökunar sem hann gerði ekki.“
Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, taldi málið vera utan lögsögu nefndarinnar í ljósi þess að Ásgeir væri í ólaunuðu leyfi frá háskólanum og í kjölfar þess sagði nefndin af sér í byrjun febrúar. Að sögn Kára var um stór mistök hjá rektor að ræða.
„Þetta voru dapurleg mistök af hálfu Jóns Atla sem háskólaráði ber að leiðrétta. Meðan Ásgeir er handhafi stöðu við Háskólann hlýtur skólinn að gera þá kröfu til hans að við fræðistörf sín þá haldi hann sig innan þeirra marka sem eru settar af siðareglum skólans og hefðum fræðasamfélagins.“