Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er ekki ánægður með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Katrín hefur svarað opnu bréfi sem Kári sendi ríkisstjórninni í desember og óskaði eftir stuðningi við ákvörðunar Persónuverndar.
Fréttablaðið fjallar um málið í dag.
Persónuvernd sagði ÍE ásamt Landspítala hafa brotið lög með mótefnamælingum með blóðsýnatöku úr Covid-19 sjúklingum.
Í svari Katrínar til Kára segir að Persónuvernd sé sjálfstæð stofnun sem starfi á grundvelli laga. Hendur ráðherra séu bundnar varðandi afstöðu til einstakra úrlausna. Komi fram ábendingar um úrbætur í löggjöfinni séu stjórnvöld að sjálfsögðu reiðubúin að taka þær til skoðunar.
„Það sé hlutverk dómstóla að leggja mat á réttmæti einstakra úrlausna og hvort stofnanir fari út fyrir verksvið sitt. Ríkisstjórnin treysti því að Persónuvernd líkt og önnur stjórnvöld séu í góðri trú að vinna eftir lögum með almannaheill og meðalhóf að leiðarljósi,“ segir jafnframt í bréfi Katrínar.
Í bréfinu segir að framlag ÍE til baráttunnar gegn faraldrinum verði seint fullþakkað. „Aðkoma fyrirtækisins hafi skipt sköpum.“
Kári gefur lítið fyrir bréf Katrínar í samtali við Fréttablaðið.
„Það var innihaldslaust bréf og í því var enginn stuðningur,“ segir Kári Stefánsson.