Kári: „Ég veit ekki hvað er að þessu þingi“ – Sjáðu vísuna sem hann samdi

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er engum líkur eins og margsinnis hefur sannast. Kári brá á leik í viðtali við Fréttablaðið í morgun og fór með vísu sem hann samdi á dögunum.

Kári hefur gagnrýnt yfirvöld nokkuð að undanförnu og á miðvikudag sagði hann að ríkisstjórnin væri að hrasa á lokametrunum með frumvarpi sínu um sóttvarnir á landamærunum.

„Ég gagn­rýndi aðal­lega það að frum­varpið var sett saman þannig að það var settur lítill kassi utan um sóttvarnalækni. Mér fannst frum­varpið klaufa­lega sett saman en ég veit að það var sett saman af góðum vilja,“ segir Kári við vef Fréttablaðsins í morgun.

Kári segist jafnframt furða sig á því að ekki hafi enn verið samþykkt almennileg sóttvarnalög til frambúðar. Eftir fjór­tán mánuði af far­aldri í landinu hafi þingið ekki treyst sér til að setja lög sem myndu gilda lengur heldur en í nokkra mánuði.

„Ég veit eigin­lega ekki hvað er að þessu þingi,“ segir Kári. Þegar hann var spurður hversu oft hann þyrfti að tala um þetta svo að þetta myndi gerast, svaraði Kári:

„Ég veit það ekki. Þegar ég las um það að þeir hefðu setið alveg til fimm um morguninn, linnu­laust, stóðst ég ekki freistinguna og setti saman eftir­farandi vísu:

Þó þeir tali heilan helling,
heyrist sjaldan glitta í vit,
því gáfna þingsins gengis­felling,
gerir okkur flesta bit.“

Hér má lesa viðtal Fréttablaðsins við Kára í heild sinni.