„Þeir eru einfaldlega að setja á svið leikþátt sem á að sannfæra fólkið í landinu um að þeir séu svo afgerandi og duglegir.“
Þetta sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í færslu á Facebook-síðu sinni í gær en færslan hefur vakið talsverða athygli. Þar gagnrýnir hann yfirvöld í Danmörku fyrir að loka landinu með það að marki að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Danir tilkynntu þetta á föstudag og gildir lokunin í fjórar vikur, eða til 13. apríl. Þá sagði Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, að íbúar mættu eiga von á því að hermenn stæðu vörð um landamærin.
Kári líkir þessum hörðu viðbrögðum við sýndarmennsku á sama tíma og hann hrósar yfirvöldum hér á landi í hástert vegna þess hvernig tekið er á málunum.
„Viðbrögð hérlendra stjórnvalda við faraldrinum hafa verið til fyrirmyndar og nákvæmlega eftir bókinni. Alma og Þórólfur og Víðir hafa verið yfirveguð og ekki látið hávaða ýta sér út í aðgerðir sem vinna gegn því markmiði að hemja óværuna. Þau eru okkur til mikils sóma. Þau eru ekki bara flínkust heldur líka flottust og eru að leggja mikið að mörkum til þess að bjarga mannslífum,“ segir Kári sem vindur sér svo að Dönum.
„Það sætir hins vegar furðu hvernig Danir taka á málunum. Þeir loka landamærum eftir að veiran hefur breiðst út í landinu. Er hugmyndin að loka veiruna inni? Varla, vegna þess að hún grasserar í öllum löndunum í kringum þá. Þeir eru einfaldlega að setja á svið leikþátt sem á að sannfæra fólkið í landinu um að þeir séu svo afgerandi og duglegir. Þeir ætla meira að segja að nota dáta til þess að verja landið gegn veiru sem er þegar komin þangað.“
Kári endar svo færsluna á að lofa stjórnvöld hér á landi.
„Það eru forréttindi að hafa við stjórnvölinn í okkar aðgerðum fólk sem segir satt, er einlægt og leggst ekki svo lágt að reyna að plata. Ég tek ofan fyrir þessu fólki í auðmýkt.“