Karen Kjartansdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og fréttakona til margra ára, segir frá því á Twitter að um daginn hafi hún og fjölskylda hennar skipt um símafyrirtæki.
„Sögðum upp Vodafone og fórum til Nova. Nú er netið á heimilinu mjög öflugt og símtölin hjá mér slitna ekki endalaust,“ segir Karen sem spyr hvers vegna hún tók þetta skref ekki fyrir áratug.
„Skýringin sem ég fékk alltaf hjá Vodafone var að húsið væri gamalt. Þá væru nettengingar oft vandamál. Við höfum því kostað talsverðu til að bæta úr en ekki uppskorið annað en versta net sem og síma sem fólk hefur reynt. Nú er það allt geggjað, þökk sér Nova,“ segir Karen í færslunni sem vakið hefur nokkra athygli.
Þeir viðskiptavinir Nova sem skrifa athugasemdir við færsluna virðast að minnsta kosti vera ánægðir með þjónustuna sem fyrirtækið býður upp á.
„Vann hjá þeim í nokkur ár og get vottað fyrir það að þeim er sko alls ekki sama um sína viðskiptavini. Þjónusta er í algjörum forgangi, alltaf. Vilja alltaf gera betur, taka öllum ábendingum fagnandi og síðan er lagt mikið upp úr starfsánægju því happy staff = happy kúnnar,“ segir í einni athugasemd við færsluna.
Neytendahornið: um daginn skipti fjölskyldan öll um símafyrirtæki, sögðum upp Vodafone og fórum til Nova. Nú er netið á heimilinu mjög öflugt og símtölin hjá mér slitna ekki endalaust. Hvers vegna gerði ég þetta ekki fyrir áratug?
— Karen Kjartansdottir ☂️ (@karenkjartansd) May 16, 2021