Kara Kristel með frumlega lausn á hvernig „taka á samtalið“ um jólasveinana við börn

Varúð – Ekki lesa lengra ef þú vilt ekki vita neitt um jólasveinana þrettán

Áhrifavaldurinn Kara Kristel hefur deilt lausn á því hvernig „taka á samtalið um jólasveinana“ við börn. Lausnin sem hún deilir á Twitter er heldur frumleg og mjög fyndin.

„Það eru 99% líkur á því að krakkinn komi heim eftir skóla á mánudaginn og spyrji hvort það sé rétt að jólasveinarnir séu lygi,“ segir hún.

„Pæling að vera fkn hissa bara wtf og fara með hann til mömmu minnar og bara “ AFHVERJU SAGÐIRU MER ÞAÐ ALDREI “ svo hún þurfi að taka samtalið.“

Kara Kristel hefur ekki miklar áhyggjur af barninu, frekar móður sinni.

„Mamma er sjálf ennþá traumatized eftir að 6 ára ég exposeaði hana um miðja nótt.“