Kara Kristel: Barnaverndarnefnd fékk ábendingu vegna myndar – „Eru allir gengnir af göflunum?“

Áhrifavaldurinn Kara Kristel segir að ónefnd „gella“ hafi fengið ábendingu frá Barnaverndarnefnd á þriðjudag vegna myndar sem hún birti á Instagram. Kara Kristel segir á Twitter að myndin hafi þótt „of klámfengin“ og „börnin hennar gætu séð“.

„..á myndinni sést andlitið hennar, axlir og brjóstaskora?? Ekkert meira?? Eru allir gengnir af göflunum eða,“ spyr Kara Kristel.

Innlegg hennar hefur valdið miklum usla meðal mæðra sem eru á Instagram.

„Er bókstaflega í sjokki. Mömmur mega ekkert ÞvÍ HvAÐ uM BöRnIn,“ segir Ingibjörg Eyfjörð, áhrifavaldur og móðir, en Ingibjörg meðal annars selur erótískt myndefni á OnlyFans.

Hrund nokkur furðar sig á þessu: „Óguð er mamman nokkuð sexí? Það er svo hræðilegt að mamman sé sexí? Börnin verða sennilega afbrotafólk!“

Birta segir þá: „Ég þori varla að segja þetta upphátt en bæði börnin mín urðu til af því að ég var einmitt mjög sexí.“

Fjóla nokkur sagði líka: „Okey ég er þá í djúpum skít ef einhver tilkynnir mig til BVN fyrir instagramið mitt.“

Ingibjörg tók undir með henni: „Same.“

Þórdís nokkur bendi svo á: „Börnin hennar? Eru brjóstin á mömmu venjulega ekki það sem börn glápa mest á framan af ævinni?“

Kara Kristel bætti svo við:

„Mun berja öll sem munu reyna kenna syni mínum að líkami sé eitthvað til að skammast sín fyrir, eitthvað til að fela og ef líkami sé ekki falinn sé það kynferðislegt. Ég meina það ég mun berja öll óháð kyni eða aldri sem reyna.“