KAPP kynnir byltingarkennda nýjung í Barcelona

KAPP kynnti nýjung á Sjávarútvegssýningunni í Barcelona í dag. Um er að ræða CO2 kælimiðil sem verður nú boðið upp á í fyrsta sinn í allar krapavélar í stað Freons. KAPP er fyrsta fyrirtækið í heiminum til að þróa og framleiða krapavéla sem er umhverfisvæn og stenst krefjandi kröfur og álag sem er á vélbúnaði til sjós.

„Nýi CO2 kælimiðill er byltingarkenndur búnaður. Sjávarútvegsfyrirtæki geta minnkað kolefnisspor með því að skipta yfir í CO2 umhverfisvæna kælimiðilinn og minnka þannig GWP* (Global Warming Potential), eða hlýnunarstuðul, gríðarlega. Nýi CO2 umhverfisvæni kælimiðilinn minnkar GWP* úr 1397 niður í 1 GWP*. Hlýnunarstuðull er geta gróðurhúsalofttegundar til að valda loftslagshlýnun samanborið við mátt CO2. Freon R-449A er 3.255 ár að dreifa í náttúrunni en CO2 er 1 ár að losna,“ segir Heimir Halldórsson, viðskiptastjóri KAPP.

CO2 í boði fyrir alla OptimICE krapavélar

Eftir langt þróunarstarf hjá KAPP, þar sem öll þróun og framleiðsla fer fram, verður boðið upp  CO2 í allar krapavélar á þessu ári.

„Til að ná að framleiða vélar með CO2 fyrir sjávarútveginn þá þarf mikla þekkingu á honum ásamt vel menntuðum tæknimönnum. Þetta og meira til er allt til staðar hjá KAPP og afraksturinn af því er að fyrsta vél sinnar tegundar í heiminum verður afhent seinna á þessu ári,“ segir Heimir.

Sjálfbær ábyrgð

Hann segir mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum í umhverfismálum. „KAPP er leiðandi iðnaðarfyrirtæki í sjálfbærnimálum, með sinn eigin kolefnisskóg, sérhæfingu í að aðstoða fyrirtæki við að minnka kolefnisspor sitt með því að útrýma F-gösum (feron) og setja inn umhverfisvæna kælimiðla í staðin. Nú bætist við enn ein stoðin í sjálfbærnimálum hjá KAPP með því að bjóða  CO2 lausnina fyrir sjávarútveg.“