„Samfélög manna verða ekki söm og áður. Það er líklegra en hitt að gildismat okkar breytist og að þau samfélög ofurneyzlu, sem orðið hafa til, ekki sízt á Vesturlöndum, muni smátt og smátt hverfa eða a.m.k. láta undan síga.“
Þetta segir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins á bloggsíðu sinni um COVID-19 faraldurinn. Styrmir segir að þau eftirköst séu jákvæð og nefnir hann sérstaklega loftslagsbreytingar. Þá veltir Styrmir upp þeirri spurningu hvort kórónuveiran sé að opna augu fólks að á sama tíma og sumir á Vesturlöndum lifi í ríkidæmi og ofneyslu þjáist fjölmennir hópar vegna fátæktar í öðrum heimshlutum. Styrmir segir:
„Kannski þurfti mannfólkið að verða fyrir svona áfalli til þess að ná áttum.“